|
Hundahreysti - fyrsta val hundsins |
|
Vafraðu umTenglar
|
Stormur og Griffonarnir
Ég hef alla tíð verið í vandræðum með að halda holdum utan á hundunum mínum, allt hefur verið reynt og þegar Kristín fór að segja mér frá því að hún ætlaði að fara af stað með sænska hráfæðið var ég þegar í stað staðráðin í því að fá að vera með frá upphafi þar sem ræktandinn minn í Svíþjóð notar þetta á sína hunda með góðum árangri og hefur gert í nokkur ár. Matarlystinn hjá strákunum mínum var mun meiri en hún hefur nokkurn tímann verið og dallarnir voru tómir í fyrsta skipti í langann tíma. Svona er staðan enn þann dag í dag. Allir hafa þeir bætt á sig og eru í fínu formi. Ég er með 3 mismunandi feldgerðir (snöggt,síðhært og strýhært) á mínu heimili og eru þeir allir með góðann glansandi feld eftir að þeir byrjuðu á fóðrinu. Robbi er á fullu í hundafimi og finnst það æði, fullur af orku og skemmtum við okkur konunglega. Síðann hann byrjaði á hráfóðrinu hefur hann klárað íslenska meistaratitilinn sinn og vantar aðeins 1 CACIB til að verða alþjóðlegur meistari. Rolf er að stíga sín fyrstu skref í hlýðni. Stormur heimsækir krakkana í Rjóðrinu. Skreppur er upptekinn af því að vera hvolpur. Kveðja,Ásta María Karlsdóttir |