Hundahreysti

- fyrsta val hundsins

Vafraðu um


Tenglar

Masati´s Nora

Tegund: Rottweiler
Hundur: Masati´s Nora
Eigandi: Fredrik Bjurklint
Athugasemd: Ég leitast við að gefa hundunum mínum besta fóður fáanlegt.




ég hef keppt á næstum öllum stórum keppnum með hundunum mínum og það gerir miklar kröfur á hundamat hundanna til að þeir afreki alltaf í topp.

Ég hef gefið hundunum mínum Nordic frá 2004 og Masati´s Z (hvolpur undan Nóru) hef ég gefið Nordic allan hvolpatímann og áfram og það ætla ég að halda áfram að gera.

Hundur sem vinnur jafn mikið og Nora gerir krefst fóðurs sem gefur henni allt það sem hún þarf til að hafa einbeitinguna í topp og þol og möguleika að endurheimta sig. Allt þetta gerir Nordic hundafóður.

Ég hef prufað næstum öll stóru þurrfóðurvörumerkin á markaðnum án þess að finna það sem ég er að leita að.

Ég leitast við það að gefa hundunum mínum það besta sem til er, ásamt því að vera eins nálægt þeim mat sem er náttúrulegur fyrir þá, sem þeir hefðu borðað villtir. Þessvegna gef ég Nordic hundafóður. Annar kostur sem ég hef séð þegar Z er að vaxa er að hún vex hlutfallslega rétt allan tímann, hún hefur ekki tekið sig til og vaxið óeðlilega í lengd eða breidd á neinu tímabili.

Ég mæli virkilega með Nordic hundafóðri.

Kær kveðja,
Fredrik Bjurklint

www.bjurklint.se

Fredrik Bjurklint - Þjálfunar og keppnis fígúrant í IPO.

Með SB (IPO) CH, Masati´s Nora tilheyrir Fredrik algjörlega elítunni bæði í Svíþjóð og alþjóðlega.

Á virkum dögum vinnur Fredrik sem sölumaður og Nora er "heimavinnandi húsmóðir".

Sem fígúrant leiðir Fredrik IPO-grúppu sem eru eins og er 16 hundar, tvisvar í viku á Kinds vinnuhundaklúbbi, ásamt því að hann er mjög oft bókaður sem þjálfari allstaðar í Svíþjóð en hefur einnig fengið fyrirspurnir erlendis frá. Svo Fredrik hefur nóg að gera á frítíma sínum.

Fredrik og Nora keppa í IPO 3 og hafa LP1 og hafa startað í leit.

Þau hafa keppt í mörgum af stærri keppnum síðustu ár með eftirfarandi niðurstöður:

  • Árið 2002 voru þau í fyrsta sæti í sænskri IPO keppni fyrir Rottweilerhunda. Voru best í hlýðni og vörn.
  • Árið 2003 voru þau í þriðja sæti á heimsmeistaramóti IPO fyrir rottweiler, best í hlýðni og heiðursverðlaun fyrir besta vörn
  • Árið 2004 voru þau í sjötta sæti á sænsku meistaramótinu í IPU fyrir allar tegundi, best í hlýðni og vörn
  • Árið 2005 voru þau svæðismeistara í IPO með besta spor, hlýðni og vörn
  • Árið 2005 voru þau í sjöunda sæti í sænsku meistaramótinu í IPO fyrir allar tegundir, best í hlýðni
  • Árið 2005 voru þau sænskir meistara í IPO fyrir rottweiler, best í spori, hlýðni og vörn
  • Árið 2006 vörðu þau svæðistitilinn sinn í IPO, best í spori og hlýðni
  • Árið 2006 voru þau í öðru sæti í hlýðni á sænska meistaramótinu fyrir rottweiler
  • Árið 2006 voru þau í fjórða sæti á sænska meistaramótinu í IPO fyrir allar tegundir
  • Árið 2006 fengu þau að að vera fulltrúar Svíþjóðar í IPO heimsmeistarakeppninni fyrir allar tegundir
  • Árið 2006 vörðu þau titil sinn sem sænskir meistarar í IPO fyrir rottweiler, besta spor, hlýðni og vörn
  • Árið 2006 voru þau í öðru sæti í heimsmeistarakeppni í IPO fyrir rottweilerhunda, best í hlýðni
  • Árið 2007 urðu þau heimsmeistarar í IPO fyrir rottweilerhunda í Þýskalandi (28. ágúst)
Nora har en kull efter sig där Fredrik har tagit en tik, avkommorna verkar ha ärvt Noras fantastiska mentala egenskaper samt hennes arbetes kapacitet.

Avkommorna blir 1-år den 23/1-07.