|
Hundahreysti - fyrsta val hundsins |
|
Vafraðu umTenglar
|
ýmsir keppnishundar Tegund: Border collie, Aussie og WachtelHundar: ýmsir keppnishundar Eigandi: Sara Edgren Bökman Athugasemd: Hæfni hundana minna hefur aukist töluvert síðan við skiptum yfir í Nordic ferskfóður. Ég heiti Sara Edgren Bökman og á tvo border collie hunda og einn aussie. Ég þjálfa og keppi í hundafimi fyrir hönd unglindadeildar Hässleholms (ég keppi einnig með sheltie hund móður minnar). Ég keppi einnig í smölun í smalahundaklúbb á Skáni. Ég er menntaður hundafimiþjálfari frá árinu 1990. Í framhaldi hef ég einnig farið í nám í keppnisþjálfun. Ég vinn einungis með jákvæðar þjálfunaraðferðir. Mér hefur gengið mjög vel í keppnum og hef meðal annars fengið gullverðlaun á sænsku meistaramóti og silfur í hópkeppni. Ég hef þjálfað upp marga meistara innan hundafimi. Ég hef haldið kúrsa bæði í mínum heimaklubbi ásamt fleiri öðrum klúbbum. Ég er líka einkaþjálfari. Ég er að þjálfa nýju hundana mína núna og þar sem við æfum daglega smölun og hundafimi hef ég tekið eftir því að hæfi hundanna að einbeita sér hefur aukist töluvert og úthaldið þeirra einnig síðan við skiptum yfir á Nordic ferskfóður. Maðurinn minn, Anders, er líka allur í hundunum bæði í eftirleit í veiði og í hlýðni. Hann hefur líka tekið eftir því á sínum wachtel hundi að þolið að spora er betra síðan við byrjuðum að nota Nordic vörurnar. Arnders hefur mikla reynslu af eftirleit, hann er viðurkenndur þjálfari innan veiðisambandsins. Við getum með okkar reynslu hjartanlega mælt með Nordic vörunum til allra sem eru í hundum þar sem þeir sýna það greinilega að þeim finnst þetta ekki bara bragðgott heldur hafa þeir líka betra úthald. |