Hundahreysti

- fyrsta val hundsins

Vafraðu um


Tenglar

Macke

Tegund: Malinois
Hundur: Acheron Az av Nangijala "Macke"
Eigandi: Sofia Tenselius
Hvar: Svíþjóð
Athugasemd: Macke var með viðkvæman maga áður en hann byrjaði á Nordic.






Macke, eða Acheron Az av Nangijala eins og hann heitir í ættbók, er fjögurra ára gamall og fyrsti malinois hundurinn minn. Það er dásamlegt að vinna með honum: hann er alltaf í stuði og lærir mjög fljótt.

Fremsti árangur okkar á keppnisbrautinni hingað til er fjórða sæti í sænska "skyddshundsgruppen" (varnaríþrótt, spor, víðavangshlaup og hlýðni) á sænska meistaramótinu árið 2006. Vorum með hæstu stig í hlýðni, 281 (af 300 innsk. þýðanda) af öllum þátttakendum. Þar að auki urðum við héraðsmeistarar í þeirr íþrótt í Östergötland árið 2006. Macke var í 8 sæti í íþróttinni í sænska meistaramótinu árið 2008.

Núna keppum við bara í "skyddshund"grúppunni, en vonandi fáum við tíma seinna meir til að keppa bæði í spori og víðavangshlaupi síðarmeir.

Ég vinn sjálf sem dýralæknir og hef síðustu ár sérhæft mig í tannheilsu, sérstaklega hjá hestum en líka hundum og köttum.

Macke var með mjög viðkvæman maga þegar hann var yngri og átti í ýmsum vandræðum áður en ég prufaði Nordic. Ég sá mikinn mun þegar ég skipti frá þurróðri yfir í ferskfóður. Hann hefur í raun ekki haft nein vandamál síðan.